Reykjavík Winner sýning ásamt alþjóðlegri hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands verða haldnar helgina 21. - 22. júní 2014. Sýningarnar verða báðar haldnar úti í Viðidalnum, í boði verður tjaldsvæði fyrir þá félagsmenn sem kjósa að nýta sér það.
Skráningafresti lýkur föstudaginn 23. maí 2014. - Skráningar sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. Dómarar að þessu sinni eru: Gunnar Nymann (Danmörk), Malgorzata Supronowicz (Pólland), Tomasz Borkowski (Pólland), Birgitta Svarstad (Svíþjóð), Péter Harsányi (Ungverjalandi), Eivind Mjorum (Noregi), Ann-Marie Mæland (Svíþjóð), Vincent O'Brien (Írlandi) , Viktoría Jensdóttir (Íslandi), Herdís Hallmarsdóttir (Íslandi) og Sóley Halla Möller (Íslandi). Hægt er að skrá á sýningarnar í gegnum síma á opnunartíma skrifstofu með kredikorti eða maestro debetkorti, vinsamlega verið með kortaupplýsingar við hendina við skráningu (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer). Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. Einnig er eins og áður hægt að skrá hunda á sýninguna á skrifstofu félagsins að Síðumúla 15 á opnunartíma skrifstofu sem er 10.00-15.00 alla virka daga. Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst. Álag mun geta orðið á almennum störfum á skrifstofunni síðustu daga skráningar og eru félagsmenn beðnir að sýna biðlund á meðan þetta ástand varir. Þeir sem þurfa að skrá got og/eða innflutta hunda í ættbók HRFÍ eru beðnir að ganga frá skráningu tveimur vikum áður en skráningafresti lýkur til að tryggja að hundur komist á sýninguna, þ.e. fyrir 9. maí 2014. Þátttökurétt hafa hundar sem eru með ættbók frá HRFÍ.
0 Comments
|
AuthorArchives
September 2021
Categories |