Markmið fjár- og hjarðhundadeildar er að halda utan um þau hundakyn sem tilheyra deildinni. Halda deildarsýningar, fræðslu um heilsufar, skapgerðarmat, eðlispróf sem sýnir eðli við að reka og safna saman fé. Heilsufarskröfur
Briard: Mjaðmamyndir: Undaneldisdýr skulu mynduð og niðurstaða kunn fyrir pörun. Greinist hundur með mjaðmalos D eða E verða afkvæmi hans ekki skráð í ættbók. (Gildir frá 01.03.09). Augnvottorð: Vottorð má ekki vera eldra en 18 mánaða við pörun. (Gildir frá 01.03.09).
Auglýsing og fyrirhugaðri pörun eða fæddum hvolpum Ræktendur geta sent póst á Umsjáanda síðunnar til að auglýsa got sem standast kröfur HRFI á deildasíðunni. Sjá upplýsingar hér að ofan. Got undir "hvolpar" verða fjarlægð hafi upplýsingar um gotið ekki borist ritstjóra sjö dögum eftir að áætlaður fæðingardagur gotsins er. Upplýsingar sem þurfa að berast eru: Áætlaður fæðingar dagur, áætlaður litur gots, nöfn foreldar og upplýsingar um ræktandann - símanúmer, neffang, veffang og afrit/mynd af heilsufars gögnum. Got undir "Fæddir hvolpar" verða auglýst í þrjá mánuði eftir að hvolparnir fæðast. Eftir það verður það tekið út af síðunni nema óskað sé sérstaklega eftir því að auglýsa það lengur. Upplýsingar sem þurfa að berast er: Fæðingardagur, fjöldi hvolpa, kynja og litaskiptin.
Fjár- og hjarðhundadeild leggur áherslu á að áríðandi er að ræktendur hafi fengið niðurstöður úr mjaðmamyndum og augnskoðunum áður en parað er.
Að auki vill deildin árétta almenn ákvæði VI kafla reglna HRFÍ um skráningu í ættbók:
Hvolpar fást ekki skráðir í ættbók HRFÍ nema að viðkomandi undaneldisdýr hafi uppfyllt eftirtalin skilyrði: · Auðkenna skal öll undaneldisdýr fædd eftir 1. janúar 1997 með varanlegu auðkenni örmerki eða húðflúri. Eingöngu er tekið gilt örmerki sem er skráð og skjalfest af dýralækni, þar sem þeir einir hafa réttindi til að örmerkja hunda. · Sérreglur gilda fyrir alla undaneldishunda sem tilgreindir eru í VI. kafla um undaneldisdýr hvenær sem þeir eru fæddir. (Undanskilið varanlegt auðkenni). · Lágmarksaldur hunda í mjaðma- og olnbogamyndatöku er 12 mánuðir. (Undanskilið 10 hundakyn.) · Áríðandi er að ræktendur noti ekki til undaneldis þá hunda sem uppfylla ekki þau heilsufarspróf (t.d. augnskoðun, mjaðmamyndun og/eða olnbogamyndir) sem gilda fyrir tegundina. Þeir ræktendur sem uppfylla ekki þessar kröfur verða áminntir með bréfi sem jafnframt verður sent til viðkomandi ræktunardeildar og Siðanefndar HRFÍ. · Röntgenmyndir af mjöðmum og olnbogum hunda eru sendar til Noregs til aflestrar. Myndir eru ekki sendar utan fyrr en ættbókarskírteini hundsins hefur borist á skrifstofu HRFÍ ásamt greiðslu fyrir kostnaði. · Við augnskoðun á vegum HRFÍ er leitað eftir þeim augnsjúkdómum sem eru arfgengir í hverju hundakyni. · Greinist hundur með arfgenga vaxandi sjónurýrnun (PRA) fást hvolpar undan honum ekki ættbókarfærðir, né afkvæmi hvolpa hans úr fyrri gotum og/eða fleiri afkvæmi foreldra hans.