jæja nú fer að styttast í næstu sýningu en þetta er tvöföld afmælissýning og er hún því extra stór og er sýnt bæði á laugardag og sunnudag :) sýningin er haldin helgina 21.-22. júní síðasti skráningardagur er föstudaginn 23. maí. Best er að skrá með góðum fyrirvara til að ekki verði erfitt að ná inn á skrifstofuna þar sem það verður eflaust mikið um skráningar. Stella Sif Gísladóttir verður með sýningaþjálfanir á fimmtudögum kl 18 í Gæludýr.is Korputorgi. Til er facebook síða sem er sér síða til að auglýsa sýningaþjálfanir og heitir hún sýningaþjálfanir fyrir HRFÍ sýningar og linkurinn inn á hana er https://www.facebook.com/groups/496132793770532/ . Ætlum að reyna að hittast fljótlega í lausahlaupi :) kv. Stella
0 Comments
Ársskýrsla 2013
Briard Sýningar: Briard tók þátt í öllum sýningum ársins og var þátttaka góð á þeim öllum. Auk hefðbundinna sýninga HRFÍ var haldin deildarsýning í maí. Á febrúarsýningu varð BOB Lizabett Forest Dazzler og BOS Imbir Bezy Bezy . Á Deildarsýningu varð BOB Trésor De Brie Ila Fauve AF. Sumarsýning þar varð BOB og RW-13 Trésor De Brie Ila Fauve AF og BOS RW-13 Nýpu-Hunda Þrasi. Septembersýning BOB Heydalur´s Aukin Ást . Nóvembersýning BOB og BÖS Lizabett Forest Dazzler og BOS Nýpu-Hunda Þrasi. Þrír hundar komu út jafnir að stigum eftir árið og voru það Trésor De Brie Ila Fauve AF, Heydalur´s Aukin Ást og Lizabett Forest Dazzler en hún varð einnig stigahæsti öldungur tegundar. Meistaratitlar: Trésor De Brie Ila Fauve AF ávann sér Alþjóðlegan meistaratitil og Imbir Bezy Bezy og Lizabett Forest Dazzler Alþjóðlega sýningameistara titla einnig var sótt um HIT auðkenni fyrir Lizabett Forest Dazzler sem staðfestingu á að hún hafi lokið eðlisprófi. Próf: Einn Briard, Heydalur´s Aukin Ást tók þátt í eðlisprófi en stóðst ekki að þessu sinni. Augnskoðun og mjaðmamyndir: Einn hundur fór í augnskoðun á árinu en það var Nýpu-Hunda Þröskuldur og var hann frír. Engin var mjaðmamyndaður. Got: Ekkert got var á árinu ein einhver eigendaskipti urðu á nokkrum hundum bæði ungum og eldri og a.m.k. einn flutti til U.S.A. með eigendum sínum. Samkomur: Briard tók þátt í tveimur kynningum á Stórhundadögum í Garðheimum á árinu og þakka ég þeim hundeigendum sem komu með hunda sína og kynntu tegundina Innflutningur: Enginn Briard var fluttur inn á árinu 2013. Fjöldi í skráðra hjá HRFÍ: Heimsenda Emma kvaddi í mars 2013 þá 11 ára gömul. Frá árinu 1993 hafa nú verið skráðir 76 Briard hundar hjá HRFÍ. Af þeim eru lifandi í dag svo vitað sé u.þ.b. 35 hundar. Þessi tegund hefur ekki náð mikilli útbreiðslu hér á landi og á feldumhirðan kannski mestan hlut þar að máli. Hittingur: Enginn skipulagður hittingur var á sl.ári en nokkrir Briard eigendur hittust fyrir sýningarnar og voru með sýningarþjálfun undir leiðsögn Stellu Sif Gísladóttur. Það er ekki auðvelt að kalla hópinn saman því þessir fáu hundar eru dreifðir um allt land og ferðakostnaður er mikill og óraunhæfur þótt vilji væri fyrir því að hittast oftar. 23.mars 2014, Elín Lára Sigurðardóttir, tengiliður Langt síðan seinast en hér koma smá update Árið 2013 endaði með góðri sýningu í nóvember þar sem 6 tíkur tóku þátt og 3 rakkar tóku þátt. Ungliðarakkar: Nípu-hunda Þröskuldur Þorri Good Nípu-hunda Þrasi Excellent Meistaraefni, 1 sæti, meistarastig BOS Unghundarakkar: Heydalur's Aukinn Logi Excellent, 1 sæti. Ungliða tíkur: Heydalur's Aukin Von Excellent, meistaraefni,2. sæti Heydalur's Aukin Glóð Excellent, meistaraefni, 1 sæti. 4. besta tík Unghundatíkur Heydalur's Aukin Þrá Excellent, meistaraefni, 1. sæti, meistarastig, CACIB 2. besta tík Heydalur's Aukin Ást Excellent meistaraefni, 2. sæti, 5 besta tík Meistara tíkur: Rw-13 IsCh C.I.B. Trésor de brie Ila Fauve AF HIT Excel. meistaraefni, V.CACIB, 3. besta tík Öldungaflokkur C.I.E. IssCh Lizabet Forest Dazzler Excl. meistaraefni,BOB, BÖT, BÖS Heydalur's ræktunar og afkvæmahópur heiðursverðlaun og sæti í BIS. Það voru 3 tíkur jafnar stigum þetta árið og voru það Íla, Bríet yngri og Bríet eldri og var ákveðið að Íla yrði hæðst þar sem hún hafði oftar unnið. Febrúar sýning: Unghundaflokkur Rakkar: Heydalur's Aukinn Logi Excellent, 1. sæti Nípu-hunda Þröskuldur Þorri Excellent, 2. sæti Ungliðaflokkur tíkur: Heydalur's aukin Lukka Excellent, meistaraefni, 1. sæti, meistarastig v.CACIB 3. besta tík Unghundaflokkur tíkur Heydalur's aukin Ást Excellent, meistaraefni, 1 sæti 4. besta tík Heydalur's Aukin Þrá Excellent, 2. sæti Meistaraflokkur Tíkur C.I.B. ISCH RW-13 Trésor de brie Ila Fauve AF HIT Excellent, meistaraefni, CACIB, 2. besta tík Öldungaflokkur tíkur C.I.E. IssCh Lizabet Forest Dazzler Excl. meistaraefni,BOB, BÖT. Heydalur's ræktunar og afkvæmahópur heiðursverðlaun |
AuthorArchives
September 2021
Categories |